Á forsíðu
Allar myndir
Unnar
Jóhann Þór
Bjartmar Þór
Ég
Áhugamál mín
myndmenntakrækjur
það sem ég hef lært

 

Áhugamál

Eitt af mínu helstu áhugamál eru ljósmyndun. Nú er ég loksins orðin 35 ára og fékk frábæra afmælisgjöf frá Unnari. Það var hvorki né ein Canon Rebel 400 með tveimur linsum 28-80mm og 70-300mm, þrjá filtera tvær töskur og tvo þrífætur. Engin smá gjöf það.

Ég hef áhuga á öllu sem viðkemur myndmennt hvort sem það er skrautskrift, dúkrista, leirmótun, glerlist eða annað. Ég reyni að mennta mig sem mest í þessu öllu svo ég hafi eitthvað að gera í ellinni því ekki hef ég tíma núna frekar en aðrir.

Áhugmál mín snúast líka mikið um dýr og eigum við þrjá hesta sem eru alltof lítið notaðir, kött sem hugsar um sig sjálfur og fiska sem eru inni á veturna og úti í tjörn á sumrin. Í fyrra þurftum við að svæfa hundinn okkar hann Erró því hann var búinn að vera mikið veikur lengi. En nú höfum við fengið tvo chihuahua en þeir heita Vinur og Perla

Ég á líka mótorhjól sem ég setti nú á skrá nýverið og lagði af stað kringum landið með átta félögum úr Röftunum. Við lögðum af stað á sunnudegi þá hjóluðum við í Þykkvabæinn og fengum þessar höfðinglegu móttökur hjá Dagrúnu. Á mánudag hjóluðum við svo á Höfn og gistum þar í tveimur litlum gistihúsum. Á þriðjudag fórum við svo af stað í vitlausu veðri en þegar við vorum komin c.a. 45 km frá Höfn og ég tvisvar næstum fokin útaf ákvað ég að stoppa. Ég og Unnar stoppuðum við bæ sem heitir Vík í Lóni hjá yndælu fólki sem aumkaði sig yfir okkur og leyfði okkur að gista. Við fengum flutningabíl um kvöldið fyrir hjólið en ég tók rútuna til Reykjavíkur daginn eftir. Unnar hélt áfram hringinn í þoku, grenjandi rigningu og roki.